Ekki hræðast email marketing! – Lykill dagsins 1/7

Ekki hræðast email marketing!

Það er ástæða fyrir því að fólk skráir sig á póstlistann þinn. Annað hvort hefur það keypt vöru eða þjónustu af þér áður eða skráð sig sjálfviljugt á listann.
Ef fólk vill ekki vera á listanum þínum, þá einfaldlega skráir það sig bara af honum, en af okkar reynslu þá eru fáir sem skrá sig af póstlista sem sent er reglulega.
Það þarf samt að hafa í huga að spamma ekki listann of mikið, en ekki samt vera hrædd við að senda of oft.
Það er í lagi að senda eins oft og þú vilt, það þarf bara að passa að vera að senda ekki alltaf það sama.
Ef þú sendir tölvupóst á póstlistann þinn á hverjum degi og ert alltaf með eitthvað nýtt og spennandi að tala um, þá er það í góðu lagi.
Eins og ég sagði í myndbandinu hér að ofan þá ertu kostir þess að nota email marketing þessir:
  1. Ókeypis markaðssetning. Það kostar ekkert að senda email þannig þú ert í rauninni að markaðssetja þig og þitt fyrirtæki frítt!
  2. Eykur hagnað. Þetta er einnig mjög góð leið til að auka hagnað. Þetta er mjög heitur hópur sem þú sendir á og er líklegur að versla meira við.
  3. Bætir tengsl við viðskiptavinina. Ef þú sendir reglulega fræðandi efni, upplýsingar um fyrirtækið og tilboð, þá bætir það tengsl við viðskiptavinina þína og þú heldur fyrirtækinu í undirmeðvitundinni hjá þeim.

Hvernig forðumst við að fjölpósturinn “spam” möppunni?

Það er ekkert skemmtilegt við það að vinna lengi að flottum tölvupósti sem þú ætlar að senda á tölvupóstlistann sem þú ert búinn að vera að safna á og svo lendir fjölpósturinn í “spam” möppunni.
Fjölpósturinn lendir svo í spam möpppunni og heitasti markhópurinn þinn sér ekki póstinn! 😡😡
 Við hjá Key Of Marketing erum með nokkur ráð við þessu.
  1. Ekki senda út mail sem líta út eins og “spam” póstur
  2. Ekki nota svokölluð “spam trigger” orð í titli eða lýsingu t.d. bonus, prósentutölur 100% o.fl
  3. Ekki nota bara stóra stafi “ÚTSALA” í titli
  4. Hreinsaðu listann þinn! Ef þú ert með tölvupósta sem eru ekki virkir lengur. ISP tekur eftir því ef að margir póstar sem þú sendir út “bounca”
  5. Þú græðir ekkert á því að vera með einhvern á listanum sem langar ekki að vera þar. Það getur verið sniðugt að notast við “double opt in”. Það virkar þannig að þegar viðskiptavinur skráir sig á listann fær hann senda tilkynningu til þess að samþykkja að vera á listanum.Það getur verið sniðugt að láta fólk vita hversu oft þið sendið póst frá ykkur til þess að láta vita hvað fólk má búast við þegar að það skráir sig á listann ykkar, þessar upplýsingar geta fylgt “welcome” póstinum.Með þessu færðu fólk á listann sem virkilega vill vera á honum.
  6. Ekki kaupa lista og senda á hann, þú endar með því að senda fullt af póstum á óvirk netföng og persónuvernd gæti bankað upp á.
  7. Gerðu fólki auðvelt að skrá sig af listanum, ef fólk vill ekki fá póst frá þér þá er hætta á að fólk tilkynni þig sem “spam” og þú hagnast lítið á því.
  8. Vandaðu þig við fjölpóstana og sendu efni frá þér sem fólk vil opna og lesa.
  9. Sendu prufu póst áður en þú sendir á allan listann til að gá að því hversu líklegt er að pósturinn þinn endi í “spam”. Hér eru linkar á þjónustu sem kostar ekki neitt: www.isnotspam.com & mail-tester.com

Hversu oft á að senda á póstlistann?

Þetta er alltaf stór spurning, hvenær og hversu oft á ég að senda póst á póstlistann?
Þetta er auðvitað mjög mismunandi eftir fyrirtækjum og rekstri en aðal ástæða “unsubscribes” er vegna tíðni og er mikilvægt að prufa sig áfram.
MarketingSherpa gerði könnun þar sem fólk var spurt hversu oft það væri til í að fá tölvupóst frá fyrirtækjum og það kom í ljós að 80% af hópnum sagði að það væri til í að fá tölvupóst að minnsta kosti mánaðarlega. 60% af hópnum sagði að væri til í að fá póst að minnsta kosti vikulega.
Fólk er auðvitað mismunandi og það þarf að taka tillit til þess, ekki senda það sama á allan listann. Við getum flokkað fólk niður eftir áhugamálum og fleira þá þurfum við ekki að senda póst á allan listann í hvert sinn. Segjum að við séum með fataverslun, við merkjum manneskju sem verslar barnavöru í ákveðin flokk og svo merkjum við konu í flokk þar sem hún verslar kvennmannsfatnað. Seinna meir sendum við frá okkur póst þar sem við kynnum nýja barnavöru og sendum þá fjölpóstinn seint á kvöldin þegar börnin eru líklega sofnuð en á sama tíma sendum við póstinn aðeins á þá sem eru líklegir til þess að hafa áhuga á honum.
Reynum að senda póst á sama tíma, þá er fólk viðbúið að fá póst frá þér. Fólk sem vinnur skrifstofustörf fær að meðaltali 122 pósta á dag og það er létt að týnast með öllum hinum póstunum.
Það er sniðugt að sniðugt að prufa að senda út eins og næstu sjö pósta á mismunandi vikudögum og “split testa” hvaða tími dags skilar okkur flestum opnununum og CTR (click throug rate). Það er ágætt að gera þetta oftar en einu sinni og prufa sig áfram þar sem árstími, stærð á lista og annað hefur líka áhrif.
Það getur líka verið gott að einfaldlega spyrja listann ykkar, hvenær hentar að senda póst og hversu oft.
Ekki hræðast email marketing, það er ástæða fyrir því að fólk skráði sig á listann og ef þú sendir of fáa markpósta á hópinn þá getur fólk gleymt að það hafi skráð sig á lista og listinn verður kaldur.
Email marketing snýst um að byggja upp langtíma sambönd. 

Ef þú hefur áhuga á email marketing eða annarri þjónustu ekki hika við að hafa samband eða senda okkur línu á team@keyofmarketing.is

What’s Up?

HAFÐU SAMBAND